10september
Þegiðu Snorri Sturluson!
Lýstu leiknum og hættu að væla
18ágúst
Tvífarar vikunnar eru annars vegar vondi kallinn Skeletor og hins vegar vonda kellingin og So you think you can dance dómarinn Mary Murphy.
Annars er það ykkar að dæma hvort einhver svipur sé með þeim.

18ágúst
Ég var ekki svo heppinn að upplifa sjöunda og áttunda áratuginn þegar karlmenn voru ekki alvöru karlmenn nema þær væru með loðna efri vör, eða allavega barta (ég er ekki að gefa í skyn að þú sért flottur Andri). Þetta var tíminn þegar Magnum P.I. var upp á sitt besta og Tom Selleck fékk allar kellingarnar.
Hvenær kemur yfirvaraskeggið með come-back? Guð má vita að allt sem var flott á þessum tíma eru búið að endurvinna og selja á uppsprengdu verði í Spútnik og Kronkron. Er ekki kominn tími á endurkomu yfirvaraskeggsins. Ég styð þá sem vinna að þessari endrukomu. Þar fer fremstur í flokki varaformaður hormottusamtaka Bandaríkjanna, Robert Downey Jr.

Hversu kynþokkafullur getur karlmaður orðið?
29júlí
Nú er verðið á bíómiðanum komið upp í þúsundkall og þegar það gerðist sagði ég við sjálfan mig að ég ætlaði aldrei að borga 1000 kall í bíó. Það entist auðvitað í svona korter, en aftur á móti er ég farinn að vanda valið á myndum aðeins betur. Það er hins vegar erfitt að velja bara góðu myndirnar til að fara á í bíó áður en maður sér þær...
Á sunnudaginn fór ég á stórmynd sumarsins, nýju Batman myndina. Ég hafði vægast sagt miklar væntingar til þessarar myndar. Annars vegar vegna þess að hin myndin var frábær og hins vegar vegna þess að Dark Knight er komin í fyrst sæti á top 250 á IMDB.

Myndin var stanslaust stuð frá upphafi til enda, að undanskildum atriðunum með Maggie Gyllenhaal, sem er ekki bara ljótari heldur en Katie Holmes, heldur líka leiðinlegri. Christian Bale er án efa flottasti Batman ever og líklega eini karlmaðurinn sem ég væri til í að ríða. Heath Ledger á stórleik sem Jokerinn og tókst í ófá skipti að láta mann fá alvarlegan hroll. Michael Caine var frábær að vana, rétt eins og Morgan Freeman. Aaron Eckhart kom skemmtilega á óvart sem Harvey Dent.

Fyrir utan frábæran leik hjá flestum sem komu við sögu í myndinni er alltaf hægt að reikna með frábærum hasaratriðum og sprenginum í svona stórmyndum og Dark Knight olli ekki vonbrigðum. Græjurnar, bílarnir og búningurinn voru frábær, fyrir utan "GSM-sonar kerfið", sem mér fannst aðeins of.
Það er mjög erfitt að setja út á þessa mynd því hún er svo frábær, þó mér finnist hún ekki alveg eiga heima í fyrsta sæti yfir bestu myndir ever. Þegar ég kom heim úr bíóinu langaði mig að horfa aftur á myndina og þegar ég vaknaði morguninn eftir hugsaði ég hvað mig langaði að horfa á hana vegna þess að mig var buið að dreyma hana alla nóttina.
Ég mæli hiklaust með þessari frábæru mynd.
Einkunn: 9/10
23júlí
Tvífararnir að þessu sinni eru annars vegar Óskarsverðlaunaleikarinn Philip Seymour Hoffman og hins vegar sundkappinn og drykkjurafturinnn Guttormur Árni Ársælsson.

23júlí
Mér leiðist svo mikið á daginn í fríinu mínu að ég ákvað að gera aðra tilraun með þetta blogg. Nú er bara að bíða og sjá hversu langur tími líður þangað til að ég gefst aftur upp eða hvort ég geri þetta bara á mánaðarfresti. Ef einhver les þetta þá er vel þegið að fá comment.
Það er mikil óvissa með verslunarmannahelgina og ég er forvitinn að vita hvað fólk ætlar að gera og hvort einhver hefur áhuga á að leika við mig og Tinnu þá helgi.
28ágúst
Spurning um að maður fari að gera þetta að reglulegum lið hérna í blogginu. Ég var að leita að mynd af afmælisbarni dagsins og þá sá ég þessa sem er skuggalega lík honum Höskuldi, vini mínum, Elefsen. Mín skoðun er sú að þeir séu nánast alveg eins... en dæmið fyrir ykkur sjálf.

So, what do you think?
19ágúst
Ég var að horfa á Arsenal vs. Aston Villa í dag, sem endaði 1 - 1, gegn gangi leiksins. Ég tók hins vegar eftir manni sem er alveg eins og annar maður sem ég veit um, þ.e. ég fann tvífara, Gavin McCann, leikmann Aston villa og James Nesbitt, leikara (úr cold feet).

21júlí
Ég hef verið að velta fyrir mér undanfarið um hvað fegurð snýst og í hverju hún felst. Maður heyrir daglega talað um fallega fólkið, falleg hús og þar fram eftir götunum. Stundum heyrir maður líka talað um fallega hluti sem maður lítur oft ekki á sem
fallega.
Ég lenti í umræðu varðandi þetta málefni nýlega og þá var ég að færa rök fyrir því að pungur gæti verið fallegur. Ég hef persónulega ekki ennþá séð pung sem er fallegur, en ég hef séð ljótan pung, og í ljósi þess að það sé til ljótur pungur, þá hlýtur að vera til andstaða við það. Það er að segja að það hlýtur að vera til, einhvers staðar þarna úti, fallegur pungur. Í þessum rökræðum sem ég lenti í fékk ég að heyra að það eru ýmsir hlutir sem einfaldlega geta ekki orðið
fallegir,

t.d. axlir, maður veit alveg til þess að það séu til ljótar axlir (sem gætu t.d. verið huldar vörtum, fæðingablettum, örum eða öðrum viðbjóði), en maður talar ekki um fallegar axlir. Ég vil hins vegar meina að það sé bara vegna þess að fallegar axlir séu sjaldséðar, þess vegna viti maður ekki um þær.
Til þess að eitthvað geti verið ljótt, þá verður að vera annar hlutur sömu sortar sem er fallegur, rétt eins og til þess að það geti eitthvað verið til sem kallast illt, þá verður eitthvað annað að vera til sem kallast gott.
Finnum fallegan pung og höldum heiminum í jafnvægi.
02júní
Þessi merkilega og skemmtilega vísa er eftir Dag Sigurðarson og ég eiginlega varð að setja hana hérna inn eftir að ég sá hana í ljóðabók sem vinnufélagi minn kom með í vinnuna í gær.
Ég er víst að verða heimsfrægt ljóðskáld
og ég er skítsæmilegur málari
Ég kveð nokkuð laglega
og er leikinn með lágværa trommu
And I'm the best
(Wham best, Bubbi best
Addi ríður Beggu best)
still the best male stripper in town